Íslandsmót 6. deildar kvk í blaki
- Mývetningur Íþrótta-og ungmennafélag
- 4 minutes ago
- 1 min read
Um helgina fór fram síðasta umferðin á Íslandsmóti 6. deildar kvk í blaki á Neskaupsstað. Sameiginlegt lið Mývetnings og Eflingar keppti þar í A úrslitum. Spilaðir voru 5 leikir, 2 sigrar og 3 töp, sem skilaði liðinu í 5. sæti deildarinnar. Fínasti árangur hjá liðinu á fyrsta Íslandsmóti þess og stefnir liðið á þátttöku aftur næsta tímabil.




