Bikarmót 12. - 15. ára í Bláfjöllum
- Mývetningur Íþrótta-og ungmennafélag
- 1 day ago
- 1 min read
Laugardaginn 14. mars fór fram bikarmót í alpagreinum í flokki 12. - 15. ára í Bláfjöllum. Keyrð voru tvö stórsvigsmót og átti Mývetningur þar 5 iðkendur. Tvo í flokki 14. - 15. ára stúlkna, tvo í flokki 12. -13 ára drengja og eina í flokki 12. - 13 ára stúlkna.
Dagurinn hófst á brautarskoðun klukkan 08:30
Veðrið lék við keppendur fyrri part dagsins með sól, vægu frosti og logni. Þegar líða tók á daginn bætti þó í vind og ský drógu fyrir sólu. Seinna mótinu lauk svo um 18:30. Keppendur Mývetnings stóðu sig með stakri príði og voru félaginu til sóma.
Fyrirhugað var að halda mót í svigi sunnudaginn 15. mars. Á fararstjórafundi að loknu móti á laguardeginum var tekin ákvörðun um að aflýsta móti sunnudagsins sökum afar slæmrar veðurspár.
Úrslit dagsins má nálgast á https://vola-publish.com/skrb#
Myndirnar tók Jóhannes Pétur Héðinsson






Úrslit dagsins má nálgast á https://vola-publish.com/skrb#



