top of page
Search

Mývetningur á Andrés

  • Hallgrímur Páll Leiffson
  • May 1
  • 1 min read

Andrésar andarleikarnir fóru fram með pompi og prakt dagana 23. – 26. apríl síðastliðinn í Hlíðarfjalli. Leikarnir hófust með fjölmennri og skemmtilegri skrúðgöngu ásamt formlegri setningarathöfn miðvikudagskvöldið 23. apríl.



Frá Mývetningi tóku 24 vaskir iðkendur þátt í alpagreinum, á aldrinum 5 til 15 ára. Keppnisdagarnir stóðu yfir fimmtudag, föstudag og laugardag, þar sem börnin sýndu frábæra færni, eldmóð og mikla gleði.

Krakkarnir frá Mývetningi stóðu sig með einstakri prýði og náðu góðum árangri, þar á meðal að tryggja sér verðlaunasæti í nokkrum greinum. Stemningin var einstaklega góð, ekki síst vegna þess að veðrið lék við alla þátttakendur alla keppnisdagana.



Þjálfarar Mývetnings voru afar ánægðir með frammistöðu og framfarir sinna iðkenda og segja að mikil tilhlökkun sé nú þegar farin að myndast fyrir Andrésar andarleikunum á næsta ári.



Við þökkum sérstaklega styrktaraðilum okkar og foreldrum fyrir ómetanlegan stuðning og þátttöku sem gerðu þátttöku okkar mögulega og sköpuðu eftirminnilega daga fyrir krakkana.

 
 
  • Facebook

© 2023 - Mývetningur

bottom of page